Rannsaka andlát stjórnmálamanns
Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti Huberts Aiwangers, varaforseta Bæjaralands í Þýskalandi, sem fannst látinn á hóteli í Berlín í gær.
Guardian greinir frá. Dánarorsök Aiwangers, sem var 55 ára gamall, eru ókunn en í yfirlýsingu frá lögreglu segir að hann hafi fundist látinn á hótelherbergi sínu í hverfinu Berlín-Mitte.
Lögregla og saksóknarar hefðu hafið rannsókn til að „ákvarða nákvæma dánarorsök og aðstæður andlátsins“, sagði í yfirlýsingunni.
Aiwanger, sem var formaður popúlíska flokksins Frjálsir kjósendur og jafnframt efnahagsráðherra Bæjaralands, var staddur í Berlín til að vera viðstaddur opnun skrifstofu flokksins en missti af viðburðinum þar sem honum leið illa, að því er dagblaðið Bild greindi frá.
Lík hans fannst síðar á hótelinu, að sögn blaðsins.
Forsætisráðherra Bæjaralands, Markus Söder, lýsti andláti Aiwangers sem „algjörum harmleik“.
„Við erum öll djúpt slegin. Hugur okkar er nú fyrst og fremst hjá fjölskyldu hans og börnum,“ sagði hann.
Aiwanger átti tvö börn og bjó með sambýliskonu sinni, að sögn þýskra fjölmiðla.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗