Talið að mæðgur hafi látist eftir árás bjarndýrs

Grábjörn.

Grábjörn. Ljósmynd/Colourbox

Mæðgur létust eftir að grunur leikur á að einn eða fleiri grábirnir hafi ráðist á þær í kanadíska fylkinu Bresku-Kólumbíu, að því er fjölskylda þeirra hefur greint frá.

BBC greinir frá. Lík Jenny Balcarras og dóttur hennar, Selah Reed, fundust fyrr í vikunni í Bella Coola í Bresku Kólumbíu, eftir að ættingjar höfðu tilkynnt um hvarf kvennanna á sunnudag. Þær höfðu farið í stuttan síðdegisgöngutúr að sögn fjölskyldunnar.

Líkamsleifar fundust á göngusvæði

Líkamsleifar þeirra fundust á gönguleiðasvæði í Bella Coola, samkvæmt náttúruverndareftirliti Bresku-Kólumbíu (BCCOS), sem sagði að ummerki á vettvangi „bentu til þess að dýr kynni að hafa átt hlut að máli“.

Náttúruverndarfulltrúar vinna nú að því að hafa uppi á þeim björnum sem kunna að hafa átt hlut að máli.

Jeff Tyre, eftirlitsmaður hjá BCCOS, sagði að enn væri ekki ljóst hvort fleiri en einn björn hefðu hugsanlega átt þátt í dauða kvennanna.

Hann bætti við að allir birnir sem næðust yrðu metnir og ef í ljós kæmi að björn hefði átt hlut að árásinni „verður hann aflífaður í samræmi við leiðbeiningar fylkisins um viðbrögð við árekstrum manna og villtra dýra til að tryggja öryggi almennings“.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅