Joshua Wong hlaut 10 ára dóm
Aðgerðasinninn Joshua Wong frá Hong Kong hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir samráð við erlend ríki. Þetta er í annað sinn sem honum er refsað samkvæmt þjóðaröryggislögum borgarinnar.
Wong, sem varð þekktur um allan heim í „Regnhlífarhreyfingunni“ sem skók Hong Kong árið 2014, hefur þegar setið nærri sex ár á bak við lás og slá og verður nú ekki látinn laus fyrr en síðla árs 2036.
Þagga niður í þeim sem berjast fyrir frelsi
Ræðismannsskrifstofa Bandaríkjanna í Hong Kong sagði dóminn sýna að kínversk stjórnvöld „muni ganga ótrúlega langt til að þagga niður í þeim sem berjast fyrir grundvallarfrelsi“ á kínverska yfirráðasvæðinu.
Kína kvaðst „styðja eindregið sjálfstjórnarsvæðið Hong Kong í að tryggja þjóðaröryggi í samræmi við lög og taka hart á athæfi sem stofnar þjóðaröryggi í hættu“.
„Hlutaðeigandi aðilar ættu að virða fullveldi Kína af einlægni, virða réttarkerfi Hong Kong, hætta að láta frá sér óábyrg ummæli ... og hætta hvers kyns afskiptum af dómskerfi Hong Kong og innanríkismálum Kína,“ sagði utanríkisráðuneytið.
Ákærður á ný í fyrra
Áður hafði verið gert ráð fyrir að Wong, sem er þrítugur, yrði látinn laus í janúar næstkomandi eftir að hafa afplánað fjögur ár og átta mánuði fyrir „undirróður“ samkvæmt þjóðaröryggislögum sem stjórnvöld í Peking þröngvuðu upp á borgina.
En yfirvöld í Hong Kong beittu sömu lögum til að ákæra Wong á ný í júní í fyrra og sökuðu hann um samráð við önnur ríki og aðila um að beita borgina og Kína refsiaðgerðum.
Aðgerðasinninn Joshua Wong talar í símann fyrir utan lögreglustöð í Hong Kong árið 2015. AFP/Philippe Lopez
Játaði sök
Auðkýfingurinn Jimmy Lai, sem styður lýðræði og stofnaði dagblaðið Apple Daily sem nú hefur verið lagt niður, var dæmdur í 20 ára fangelsi í febrúar samkvæmt sömu lögum.
Wong átti mögulega yfir höfði sér lífstíðarfangelsi en dómstóllinn taldi „viðeigandi upphafspunkt“ vera 13 ár, sem síðan var stytt vegna þess að hann játaði sök.
Wong sagði í bréfi sínu til dómstólsins, þar sem hann fór fram á mildun refsingar og AFP hefur séð, að hann hefði vonast til að losna úr fangelsi árið 2027 en nýja ákæran hefði valdið því að honum fyndist hann vera kominn aftur á byrjunarreit.
Hann bætti við að framtíð hans myndi ekki ráðast af fortíðinni og að árin sem hann hefur setið á bak við lás og slá hefðu verið „dýpstu lexíur“ lífs hans.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

