Vonar að niðurstöðurnar auki stuðning við Úkraínu

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti. AFP

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti vonar að sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum muni efla stuðning við Úkraínu og færa endalok stríðsins við Rússland nær.

Samskipti Trumps og Selenskís hafa verið stormasöm og spennan hefur aukist undanfarnar vikur eftir að Bandaríkjaforseti gagnrýndi Úkraínu og gerði samkomulag við Vladímír Pútín Rússlands forseta um að draga úr refsiaðgerðum gegn því að rússnesk dísilolía yrði sett á markað.

„Nú er von um að þetta valdajafnvægi verði til staðar og að við munum njóta meiri stuðnings,“ sagði Selenskí í viðtali við þýsku sjónvarpsstöðina ZDF í gærkvöld.

Hann bætti við að ef Bandaríkjaþing styddi aukinn fjárhagslegan eða hernaðarlegan stuðning við Úkraínu myndi það „hafa áhrif“ á Vladímír Pútín, forseta Rússlands, og gæti leitt til „mögulegra samningaviðræðna og mögulegs friðar“.

Viðræður Rússlands og Úkraínu með milligöngu Bandaríkjanna eiga að fara fram í Abú Dabí í næstu viku. Viðræðurnar hafa legið niðri síðan stríðið í Mið-Austurlöndum braust út í febrúar.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅