Sprengjuhótarnir í vélum Finnair og Wizz Air

Erlent | AFP | 5.11.2026 | 10:23

Flugvél ungverska flugfélagsins Wizz Air á alþjóðaflugvellinum í Búdapest fyrr í vikunni. Flugvélin, sem var á leið frá London til Sofia í Búlgaríu, þurfti að lenda á flugvellinum vegna sprengjuhótunar. AFP/Attila Kisbenedek

Tilkynnt var um sprengjuhótanir um borð í flugvél Finnair á leið frá Helsinki til Rómar og flugvél Wizz Air á leið frá Mílanó til Varsjár í morgun og var vél Wizz Air beint til Vínarborgar, að því er ítalska fréttastofan ANSA greindi frá.

Orrustuþota fylgdi vélinni sem var á leið frá Helsinki til Rómar og sprengjusérfræðingar skoðuðu hana, að því er fram kom í fréttinni, sem talsmaður flugvallarins staðfesti við AFP.

Fyrr í morgun var farþegaflugvél á leið frá Dublin til Rómar beint til Frakklands vegna sprengjuhótunar.

Flugvél ungverska flugfélagsins Wizz Air, sem var á leið frá London til Sofia í Búlgaríu, þurfti að lenda á alþjóðaflugvellinum í Búdapest fyrr í vikunni, vegna sprengjuhótunar. Engin sprengja fannst um borð í vélinni eftir að leit hafði farið fram. 

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅