Tólf sprengjuhótanir borist flugfélögum

Erlent | AFP | 5.11.2026 | 11:18 | Uppfært 13:13

Flugvél Wizz air á Lampedusa-flugvelli á síðasta ári.

Flugvél Wizz air á Lampedusa-flugvelli á síðasta ári. AFP/Stefano Rellandini

Að minnsta kosti 12 sprengjuhótanir hafa borist evrópskum flugfélögum það sem af er degi. 

Orrustuþotur fylgdu nokkrum flugvélum og að minnsta kosti tveimur flugferðum var beint annað, að sögn yfirvalda og flugfélaga.

Meðal annars voru tilkynntar sprengjuhótanir um borð í flugvél Finnair á leið frá Helsinki til Rómar og flugvél Wizz Air á leið frá Mílanó til Varsjár í morgun og var vél Wizz Air beint til Vínarborgar, að því er ítalska fréttastofan ANSA greindi frá.

Þetta er þriðji dagurinn í þessari viku sem fjöldi sprengjuhótana berst. Þær hafa einkum beinst að lággjaldaflugfélögum í flugi innan Evrópu.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅