Erlendir kaupmenn lokuðu búðum sínum
Kaupmenn af erlendum uppruna í austurþýsku borginni Halle, sem óttast um framtíð sína eftir að AfD-flokkurinn, sem berst af hörku gegn innflytjendum, vann stórsigur í nýafstöðnum kosningum, efndu til eins dags verkfalls í dag.
„Vegna AfD og kynþáttafordómanna, ja, ég get bara ekki verið hér áfram í Halle,“ sagði Mohamad-Samer, sem starfar á skyndibitastað sem var lokað í tengslum við mótmælin í samtali við AFP.
„Og allir hinir, allir Sýrlendingarnir, allir útlendingarnir – þeir geta ekki heldur verið hér áfram,“ bætti hann við.
Hlaut tæp 44 prósent atkvæða
Rakarastofur, veitingastaðir og litlar verslanir – um 30 fyrirtæki alls – tóku öll þátt í mótmælunum, drógu niður hlerana og girtu fyrirtæki sín af með rauðum og hvítum borða.
Aðgerðunum, sem gengu undir nafninu „Halle án okkar?“, var ætlað að sýna hversu mikilvægir innflytjendur eru fyrir líf þessarar borgar í austurþýska sambandslandinu Saxlandi-Anhalt.
AfD, sem lofaði fjöldabrottvísunum í nýafstaðinni kosningabaráttu og hampaði slagorðinu „Endurflutning strax!“, hlaut tæp 44 prósent atkvæða í fylkiskosningunum í september.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗