Fjórtánda sjávarútvegsráðstefnan hafin
Sjávarútvegsráðstefnan 2026 hefst í dag og er nú haldin í fjórtánda sinn. Fram kemur á vef ráðstefnunnar, sem stendur þar til á morgun, að hún hafi fyrst verið haldin á Grand hóteli árið 2010 en nú fer hún fram í Hörpu.
Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er „Forskotið felst í fiskinum“ en á dagskrá er fjöldi málstofa sem að hluta fara fram í tveimur sölum samtímis, auk hliðarviðburða í smærri fundarherbergjum.
Ráðstefnan hefst á málstofu þar sem fjallað er um hvernig þekkingu, gæði og nýsköpun þurfi til að halda forskoti íslensks sjávarútvegs í harðri alþjóðlegri samkeppni.
Að lokinni opnun ráðstefnunnar klukkan tíu árdegis fer svo líka fram afhending Sviföldunnar – Hvatningarverðlauna Sjávarútvegsráðstefnunnar og TM.
Frekari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á vef hennar.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗