Höfnin á Þórshöfn hefur iðað af lífi

Fjölmargir nýttu sér kostaboð Gæslunnar um að koma um borð í varðskipið Freyju þegar skipið hafði viðkomu í Þórshöfn á ferð sinni um landið í tilefni af 100 ára afmæli stofnunarinnar. mbl.is/Líney Sigurðardóttir

Á Þórshöfn er engin ládeyða og við höfnina var nóg að gera um síðustu helgi, sem er engin nýlunda.

Á laugardag voru tvö flutningaskip í höfn þar sem skipað var út 1.150 tonnum af mjöli og um 800 tonnum af frystum afurðum.

Þá var einnig verið að landa 670 tonnum af síld úr Sigurði VE en fyrir utan höfnina beið Heimaey VE eftir að komast inn til löndunar, með rúm 1.000 tonn af síld.

Þar beið einnig varðskipið Freyja en Landhelgisgæslan er þessa dagana að heimsækja sveitarfélög víðs vegar um landið í tilefni af 100 ára afmæli stofnunarinnar.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅