Verðlaun NASF 2027 verða veitt í Bergen

Gísli Gíslason er formaður dómnefndar og hvatamaður að afhendingu sjálfbærniverðlauna NASF. Ljósmynd/North Atlantic Seafood Forum

„Vonandi berast líka tilnefningar frá Íslandi,“ segir Gísli Gíslason, formaður dómnefndar og upphafsmaður sjálfbærniverðlauna North Atlantic Seafood Forum.

Tilkynnt verður um verðlaunahafa á málþingi North Atlantic Seafood Forum í Bergen í Noregi dagana 9. til 11. mars á næsta ári, en verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn á málþinginu í ár.

Frestur til að senda inn tilnefningar er til 10. janúar næstkomandi, að því er fram kemur á vef NASF.

Ekki sama NASF og NASF

Vert er að nefna að þó svo skammstöfun málstofunnar og verðlaunanna sé sú sama og Verndarsjóður villtra laxastofna ber þá er um alls óskyld fyrirbæri er að ræða.

Gísli segir Sjálfbærniverðlaun NASF hafa verið stofnuð til að veita þeim viðurkenningu sem hafi náð mælanlegum árangri í sjálfbærnimálum og til að vekja athygli á nýjungum og lausnum sem stuðli að sjálfbærari sjávarútvegi og fiskeldi.

„Með verðlaununum er sjónum beint að skjalfestum árangri og raunverulegum áhrifum, sem sjálfstæð dómnefnd metur samkvæmt skýrum viðmiðum.“

Hvetur til nýsköpunar og hraðar framförum

Árangurinn af fyrstu verðlaunaafhendingunni segir hann að hafi sýnt mikilvægi þess að veita hagnýtum lausnum og forystu innan atvinnugreinarinnar viðurkenningu.

„Með því að vekja athygli á þessum árangri er markmiðið að hvetja til frekari nýsköpunar og hraða framförum í sjálfbærnimálum í sjávarútvegi og fiskeldi um allan heim.“

Þeir sem senda inn tilnefningar eru þó hvattir til þess að kynna sér reglur og leiðbeiningar um sjálfbærniverðlaun NASF 2027.

Tilnefna má sjálfan sig

Kallað er eftir tilnefningum í tölvupósti til: [email protected]

„Tekið er við tilnefningum úr allri virðiskeðju sjávarafurða, þar á meðal frá sjávarútvegi, fiskeldi, fóðurframleiðslu, fiskvinnslu, tæknifyrirtækjum, rannsóknastofnunum og öðrum tengdum aðilum sem starfa að öllu leyti eða að hluta á Norður-Atlantshafssvæðinu.“

Fram kemur að tilnefna megi aðra og eins sé heimilt að tilnefna sjálfan sig.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅