Senda skólum leiðbeiningar vegna sprengjuhótana

Fram kemur í póstinum að hótanir hafi borist einhverjum stofnunum borgarinnar. Í póstinum má einnig finna gátlista fyrir starfsfólk. mbl.is/Karítas

Skólastjórnendum og öðrum stjórnendum hjá Reykjavíkurborg hafa verið sendar leiðbeiningar frá ríkislögreglustjóra um viðbrögð við sprengjuhótunum. Fram kemur í pósti til þeirra að hótanir hafi borist einhverjum stofnunum borgarinnar.

Ekki hefur fengist staðfest hvaða stofnanir fengu slíkar hótanir eða hvort skólar séu þar á meðal.

Öryggisdeild ríkislögreglustjóra metur hótanirnar ótrúverðugar og telur þær eiga uppruna sinn utan Evrópu.

Í póstinum, sem mbl.is hefur undir höndum, er að finna leiðbeiningar frá ríkislögreglustjóra um hvernig eigi að bregðast við sprengjuhótunum.

Starfsfólkið leiti sjálft að sprengjunni

„Vinsamlegast deilið upplýsingunum, leiðbeiningunum og meðfylgjandi gátlista eftir þörfum til undirstofnana og/eða yfirmanna skóla þannig að viðeigandi aðilar séu upplýstir um stöðuna og viti hvernig bregðast skuli við berist sambærileg samskipti,“ segir í póstinum.

Í leiðbeiningunum, sem koma frá sérsveit ríkislögreglustjóra, er starfsfólk beðið um að halda ró sinni berist hótun símleiðis og reyna að halda hringjandanum sem lengst á línunni.

Þá eigi að skrifa niður sem orðréttast það sem sagt er og taka eftir hreim, málfari og bakgrunnshljóðum enda gefi þeir sem hringja oft ýmsar upplýsingar um sjálfa sig.

Athygli vekur að starfsfólkið sjálft er talið best til þess fallið að leita í eigin húsnæði þar sem það þekki umhverfi sitt og viti hvað eigi ekki heima þar.

Finnist grunsamlegur hlutur á hvorki að snerta hann né hreyfa, og er minnt á að sprengja geti litið út hvernig sem er.

Eiga ekki að leggja á

Í póstinum má einnig finna gátlista fyrir starfsfólk. Þar er starfsfólk hvatt til að vera rólegt og vingjarnlegt og leggja ekki á jafnvel þótt sá sem hringir geri það. 

Á listanum eru dæmi um spurningar sem leggja má fyrir hringjandann, svo sem hvar sprengjan sé, hvenær hún springi, hvers vegna hann geri þetta og hver hann sé.

Þá á að merkja við hvort röddin sé dimm eða skær, hvort viðkomandi sé ölvaður, hlæjandi eða reiður, og hvort heyra megi umferðarnið, tónlist, samkvæmisklið eða jafnvel vélritunarhljóð í bakgrunni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅