Kosningarnar í Bandaríkjunum höfðu bein áhrif á örlög Christu Pike – Þetta vill nýji fylkisstjórinn gera

Kristinn H. Guðnason

Fimmtudaginn 5. nóvember 2026 22:30

Frambjóðendurnir Jerri Green (t.v.) og Marsha Blackburn (t.h.) höfðu mjög mismunandi meiningar um framtíð dauðarefsinga.

Margt hékk á spýtunni í nýloknum þingkosningum í Bandaríkjunum. Meðal annars framtíð hins dæmda morðingja Christu Pike, sem ekki tókst að taka af lífi í september síðastliðnum. Frambjóðendur til fylkisstjóra Tennessee höfðu mismunandi meiningar um hver framtíð hennar ætti að verða.

Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.

Það var ekki aðeins kosið til beggja þingdeilda í kosningunum á þriðjudag. Einnig var kosið um fjölmörg embætti í hinum ýmsu fylkjum, þar á meðal um embætti fylkisstjóra Tennessee.

Eftir að það mistókst að taka Christu Pike af lífi þann 30. september síðastliðinn með tveimur skömmtum af pentóbaríbal eitri ákvað núverandi fylkisstjóri, Bill Lee, að stöðva tímabundið allar aftökur í Tennessee. En aftaka Pike er ekki sú eina sem hefur klúðrast þar að undanförnu. Þann 21. maí klúðraðist aftaka fangans Tony Carruthers.

Síðan þá hefur óvissa ríkt um örlög Pike, en hún dvelur enn þá í einangrun á sjúkrahúsi. Mikið hékk á spýtunni í kosningunum því frambjóðendur til embættis fylkisstjóra höfðu mjög mismunandi meiningar um framhaldið. En fylkisstjórar hafa mjög víðtæk völd þegar kemur að dauðarefsingum.

Líf eða dauði

Jerri Green, frambjóðandi Demókrataflokksins, er á móti dauðarefsingum. Hún barðist fyrir því að dauðarefsingar yrðu stöðvaðar í fylkinu, þó að embætti fylkisstjóra hafi ekki völd til að breyta lögum. Á meðan Green hefði verið fylkisstjóri hefði Pike því ekki verið tekin af lífi.

Sjá einnig:

Christa Pike með óvanalega bón til fangelsismálayfirvalda

En þrátt fyrir stórsigur Demókrata víða í Bandaríkjunum náði bláa aldan ekki til Tennessee. Repúblikanar unnur öldungadeildarsætið og nánast öll, ef ekki öll, þingsætin í fylkinu. Frambjóðandi þeirra til fylkisstjóra, Marsha Blackburn, bar sigur af hólmi og hún vill ekki þyrma Christu Pike.

Rafmagnsstóllinn bíður

Þess í stað vill Blackburn að Tennessee taki aftur upp notkun rafmagnsstólsins. Rafmagnsstóllinn er umdeildasta aftökuaðferðin í Bandaríkjunum og er aðeins leyfileg í nokkrum fylkjum sem val. Aðferðin hefur ekki verið notuð síðan árið 2020.

„Þetta ástand er hörmulegt. Það ætti að vera búið að taka Christu Pike af lífi fyrir löngu. Nú lengir þetta klúðurslega ferli þjáningu fjölskyldu Colleen Slemmer,“ sagði Blackburn. En Slemmer er stúlkan sem Pike myrti árið 1995. „Tökum aftur upp rafmagnsstólinn og veitum fórnarlömbum réttlæti án tafar.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅