Samtakamáttur og safnaðarheimili
Hér stödd í kirkjunni: Björk Pétursdóttir, Einar Eyjólfsson safnaðarprestur og Jóhann Guðni Reynisson, sem er lengst til hægri. mbl.is/Sigurður Bogi
Framkvæmdir standa nú yfir við endurbyggingu safnaðarheimilis Fríkirkjunnar í Hafnarfirði og eru teknar sem samfélagslegt verkefni. Húsið er á Linnetsstíg 6, byggt árið 1920, og var upphaflega bárujárnsklætt, eins og margar gamlar byggingar í miðbæ Hafnarfjarðar.
Þetta er næsta hús neðan við kirkjuna, það hefur verið í eigu safnaðarins frá 1996 og þar eru skrifstofur presta og félagsaðstaða, sem ýmsir innan sem utan kirkjustarfsins nýta sér.
„Húsið var forskalað eins og var í tísku um tíma. Þá var múrhúðað yfir bárujárnið svo það líktist steinhúsi. Enn seinna var það klætt með steni-plötum. Nú hefur allt verið tekið utan af húsinu og það klætt báruáli. Flestir eru, virðist mér, sammála um að þetta falli afar vel að byggðinni í miðbæ Hafnarfjarðar,“ segir Einar Eyjólfsson safnaðarprestur í samtali við Morgunblaðið.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗