Vill ekki láta fjarlægja brjóstapúðana þrátt fyrir veikindi

Jenny McCarthy á iHeartRadio Music Awards-verðlaunahátíðinni í fyrra.

Jenny McCarthy á iHeartRadio Music Awards-verðlaunahátíðinni í fyrra. AFP/Matt Winkelmeyer

Bandaríska sjónvarpsstjarnan Jenny McCarthy, sem er 54 ára, ætlar ekki að láta fjarlægja brjóstapúðana sína þrátt fyrir langvarandi veikindi sem hún rekur til myglu.

Hún ræddi ákvörðunina í nýjasta þætti hlaðvarps síns, The Jenny McCarthy Wahlberg Show, þar sem lýtalæknirinn Terry Dubrow var gestur.

McCarthy hefur verið opin um heilsufarsvanda sinn undanfarna mánuði og segist orðin afar meðvituð um allt sem gæti haft skaðleg áhrif á heilsuna. Hún viðurkennir þó að brjóstapúðarnir séu nokkurs konar undantekning frá þeirri afstöðu.

„Kannski langar mig til að losna við þá þegar ég verð gömul,“ sagði McCarthy og bætti við að hún væri einfaldlega ekki tilbúin til þess enn sem komið er.

Hún hefur gengist undir nokkrar brjóstaaðgerðir í gegnum tíðina og meðal annars látið minnka brjóstin verulega. Fyrstu brjóstastækkunina fór hún í um tvítugt en segir lækninn þá hafa sett í hana mun stærri púða en hún hafði óskað eftir.

Dubrow, sem hefur verið lýtalæknir hennar um árabil, telur ekkert benda til þess að brjóstapúðarnir tengist veikindum hennar. Hann segir jafnframt að engin merki um myglu hafi fundist á púðunum sem hann fjarlægði í síðustu aðgerð.

Jenny McCarthy ásamt eiginmanni sínum, leikaranum Donnie Wahlberg, sem hefur staðið þétt við bakið á henni í veikindunum. Skjáskot/Instagram

Sefur í tjaldi vegna ótta við myglu

McCarthy greindi nýverið frá því að hún svæfi nú í tjaldi í garðinum heima hjá sér vegna ótta við myglu. Hún segist hafa veikst eftir að hafa dvalið í gömlu búningsherbergi þar sem loftræstibúnaðurinn hafi verið kominn til ára sinna.

Að eigin sögn hefur hún glímt við margvísleg einkenni, meðal annars útbrot, bólgur, svefnleysi og sýkingar sem leiddu til þess að fjarlægja þurfti nokkrar tennur. Hún hefur einnig þurft að gangast undir aðgerðir vegna bólguhnúta í augnlokum.

McCarthy og eiginmaður hennar, leikarinn Donnie Wahlberg, hafa varið háum fjárhæðum í að láta kanna og hreinsa heimili sitt vegna mögulegrar myglu. Þrátt fyrir það segist hún enn óttast að sofa innandyra.

„Þetta hefur verið ótrúlega erfitt,“ sagði McCarthy um veikindin og óttann sem þeim hefur fylgt.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅