Affleck sækir um skilnað á fjórðu meðgöngu

Jen Affleck hefur sótt um skilnað við eiginmann sinn, Zac Affleck, eftir sjö ára hjónaband. Þau eiga þrjú börn saman og von er á því fjórða. Skjáskot/Instagram

Raunveruleikastjarnan Jen Affleck, sem er þekkt fyrir þættina The Secret Lives of Mormon Wives, hefur sótt um skilnað við eiginmann sinn, Zac Affleck.

Hjónin eiga þrjú börn saman og eiga von á sínu fjórða.

Jen, sem er 27 ára, sótti um skilnað á þriðjudaginn, eftir sjö ára hjónaband. Þetta kemur fram í dómsskjölum sem fjölmiðlar vestanhafs hafa undir höndum.

Samkvæmt heimildum People hefur Zac, sem er þrítugur, það þokkalegt þrátt fyrir aðstæður. Þau Jen leggja nú áherslu á að undirbúa komu fjórða barnsins og sinna börnum sínum sem best.

Jen og Zac kynntust árið 2018 á stefnumótaforriti og gengu í hjónaband í júní árið eftir. Saman eiga þau þrjú börn, Noru, fimm ára, Luca, þriggja ára, og Penelope, eins árs. Í júní síðastliðnum greindu hjónin frá því að von væri á fjórða barninu.

Erfiðleikar í hjónabandinu

Samband þeirra hefur verið stormasamt á undanförnum árum og hafa áhorfendur The Secret Lives of Mormon Wives fengið að fylgjast með erfiðleikum þeirra í hjónabandinu.

Í viðtali við People í ágúst síðastliðnum viðurkenndi Jen að þau hefðu unnið mikið í sambandi sínu. Hún hafði þá glímt við þunglyndi á meðgöngunni og erfið veikindi á fyrstu mánuðum hennar.

Jen sagði Zac hafa verið sér mikil stoð á þessum tíma og tekið að sér umönnun barnanna þegar hún var sem veikust.

Þrátt fyrir tilraunir þeirra til að bæta sambandið hafa erfiðleikarnir haldið áfram, meðal annars vegna ágreinings um framtíðaráform Jen og starfsframa hennar.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅