Logi mættur á Airwaves
Logi Einarsson menningarráðherra og Óttarr Proppé, tónlistarmaður og fyrrum ráðherra, tóku tal saman á Nasa í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Logi Einarsson, ráðherra menningarmála, setti í morgun ráðstefnu Iceland Airwaves sem haldin er samhliða tónlistarhátíðinni vinsælu.
Í dag og á morgun ræðir fólk úr tónlistarbransanum ýmsar hliðar hans á ráðstefnunni og þar kemur margt málsmetandi fólk fram.
Meðal umræðuefna eru áskoranir sem tónleikabransinn stendur frammi fyrir, hvernig koma eigi tónlistarfólki frá litlum málsvæðum á framfæri og hljómsveitin Sykurmolarnir og ferill hennar.
Logi Einarsson sagði í opnunarræðu sinni í morgun að uppáhald sitt við hátíðina væri hvernig samtöl milli tónlistarfólks á hátíðinni geti leitt til samstarfsverkefna sem ella hefðu ekki orðið til.
Hann ræddi einnig heimsókn sína í höfuðstöðvar Spotify fyrr á árinu og það hvernig gervigreind veki upp nýjar spurningar – í því ljósi þurfi listamenn að hafa rödd að hans mati.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


