Skíðadrottningin komin með æðislegan kærasta
Skíðadrottningin Lindsey Vonn greindi nýlega frá því nýlega að hún væri fallin fyrir franska skíðakappanum Matthieu Bailet. Vonn segir að kærastinn sé æðislegur en vill ekki deila of miklu.
„Hann er frábær og mig langar að deila því. Fólk veit að ég er að hitta einhvern og ég er hamingjusöm. En ég ætla ekki að deila of miklu heðan í frá,“ sagði Vonn á galaviðburði á dögunum að því fram kemur á vef People.
„Ég er að reyna að finna gott jafnvægi“
Vonn er ekki bara þekkt fyrir að vera besta skíðakona heims heldur líka fyrir ástarsambönd sín. Hún átti til dæmis í frægu sambandi við golfarann Tiger Woods. Hún er að reyna finna hinn gullna meðalveg þegar kemur að því hverju hún vill deila með alheiminum.
„Ég held að áður fyrr hafi þetta verið blanda af því að halda hlutunum út af fyrir mig og kannski að deila of miklu,“ sagði íþróttakonan. „Ég er að reyna að finna gott jafnvægi.“
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
