Vill að Rod Stewart dragi úr drykkjunni
Breski tónlistarmaðurinn Rod Stewart, sem er 81 árs, viðurkennir að hann eigi erfitt með að draga úr áfengisneyslu þrátt fyrir eindregnar óskir eiginkonu sinnar, Penny Lancaster sem er 55 ára, um að hann drekki minna.
Söngvarinn er nú að undirbúa síðustu tónleikaferð sína og leggur ríka áherslu á að halda sér í góðu formi.
Stewart segir í viðtali við breska dagblaðið The Sun að Lancaster, sem hann hefur verið kvæntur í 19 ár, hvetji hann reglulega til að minnka drykkjuna.
„Ég vildi óska þess að ég gæti dregið úr drykkjunni en mér finnst svo gott að fá mér vín með kvöldmatnum. Ég er með frábæran kokk og get ómögulega drukkið vatn með góðri máltíð,“ segir tónlistarmaðurinn.
Hann segist yfirleitt láta tvö vínglös duga en viðurkennir að stundum verði freistingin sterkari, sérstaklega þegar eplamartíní er annars vegar.
Æfir eins og atvinnuíþróttamaður
Þrátt fyrir vínáhugann tekur Stewart heilsuna alvarlega. Hann hjólar þrisvar í viku, syndir reglulega og hitar röddina vandlega upp fyrir tónleika. Þá segist hann gjarnan ganga með hanska af ótta við að smitast af kvefi eða flensu.
Hann rifjar upp að á yngri árum hafi tónlistarmenn gjarnan stigið á svið undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna. Nú sé öldin önnur og hann gæti þess að vera allsgáður þegar tónleikar hefjast.
Stewart viðurkennir að hann geti ekki lengur hreyft sig á sviðinu af sama krafti og áður en telur söngrödd sína aldrei hafa verið betri.
Söngvarinn hefur tilkynnt að tónleikaferðin The Final Encore, sem hefst í Dublin 23. apríl á næsta ári, verði sú síðasta á rúmlega sextíu ára ferli hans. Ferðinni lýkur í Hannover í Þýskalandi 24. júlí.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
