Bianca mætti fáklædd en börnin stálu senunni
Öll fjögur börn Kanye West og Kim Kardashian, North, Saint, Chicago og Psalm, mættu á tískusýninguna og vöktu mikla athygli. AFP/Matt Winkelmeyer
Bandaríski rapparinn Kanye West, sem er 49 ára, var umkringdur fjölskyldu sinni þegar hann kynnti nýja fatalínu frá tískumerkinu Yeezy í Los Angeles í gær.
Öll fjögur börn hans og fyrrverandi eiginkonu hans, Kim Kardashian, mættu á sýninguna.
Börnin eru North, 13 ára, Saint, tíu ára, Chicago, átta ára, og Psalm, sjö ára. West hefur reglulega sést með elstu dóttur sinni, North, en mun sjaldnar með yngri börnunum þremur. Þótti því sérstakt að sjá þau öll saman á viðburðinum.
Kanye West ásamt börnum sínum á viðburðinum. Sjaldgæft er að sjá rapparann með öll fjögur börnin saman. AFP/Matt Winkelmeyer
Bianca vakti athygli
Núverandi eiginkona rapparans, Bianca Censori, var einnig viðstödd og vakti athygli fyrir klæðaburð sinn. Hún klæddist ljósum, afar flegnum samfestingi sem var opinn langt niður að mitti.
North vakti sömuleiðis athygli í alsvörtum klæðnaði, með ljósbláa hárkollu og augnlinsur í stíl. West hélt sig hins vegar við sinn hefðbundna stíl og klæddist svörtu frá toppi til táar.
Vel virtist liggja á stjúpmæðgunum Bianca Censori og North West þegar þær stilltu sér saman upp fyrir ljósmyndara á tískusýningunni. Ólíkur klæðaburður þeirra vakti einnig athygli. AFP/Matt Winkelmeyer
Snýr aftur eftir fjögurra ára hlé
Tískusýningin bar yfirskriftina Yeezy Season 01 og markaði endurkomu tískumerkisins eftir fjögurra ára hlé. Í stað hefðbundins tískupalls gengu fyrirsæturnar í kringum stóran hvítan hól.
Þetta var fyrsta tískusýning West frá því í október 2022, þegar hann vakti mikla reiði og gagnrýni fyrir að klæðast bol með áletruninni „White Lives Matter“ á tískuvikunni í París.
Fjölmargir þekktir einstaklingar voru meðal gesta á sýningunni, þar á meðal rappararnir Kid Cudi, Big Sean og 2 Chainz.
Bianca Censori klæddist ljósum, afar flegnum samfestingi sem vakti athygli viðstaddra. AFP/Matt Winkelmeyer
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


