Falla frá endurbótum eftir mikla undirbúningsvinnu

17 ára drengur lést í bruna á Stuðlum í október 2024. Ráðist var í vinnu við nauðsynlegar endurbætur á húsnæðinu í kjölfarið. mbl.is/Karítas

Fallið hefur verið frá heildaruppbyggingu á meðferðarheimilinu Stuðlum, en til stóð að breyta öllu húsnæðinu í svokallaða félagslega bráðamóttöku með aðstöðu fyrir neyðarvistun barna og gæsluvarðhald, ásamt fyrsta stigi afplánunar.

Mikil undirbúningsvinna hefur þegar farið fram vegna framkvæmdanna en til stóð að bjóða verkið út snemma á þessu ári. Framkvæmdirnar áttu að vera fullfjármagnaðar.

Ákvörðun um að falla frá heildarbyggingu var tekin í kjölfar valkostagreiningar þar sem uppbygging stærra og nútímalegra meðferðarheimilis í Garðabæ, með fjölbreytta notkunarmöguleika, var metin hagkvæmari og betri fyrir þau börn og ungmenni sem þurfa á þjónustunni að halda. Þá var kostnaður við endurbætur á Stuðlum metinn töluvert hærri en upphaflega var gert ráð fyrir.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅