Áform andstæð EES

Ein þeira náttúruperla sem á að rukka inn á er Geysir. mbl.is/Árni Sæberg

„Ef það eru áform stjórnvalda að taka upp náttúru- og innviðagjald þá er á hreinu að til þess að slíkt gjald standist þarf það að vera án mismununar og þar af leiðandi þurfi allir að greiða slíkt gjald, líka Íslendingar,“ segir Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, í samtali við Morgunblaðið.

Sveitarfélögin Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur óskuðu eftir lögfræðiáliti á lögmæti þess hvort gjaldtaka með álagningu náttúru- og innviðagjalds á erlenda ferðamenn sem heimsækja Gullfoss, Geysi og þjóðgarðinn á Þingvöllum samrýmdist ákvæðum EES-samningsins.

Í álitinu, sem er frá Forum lögmönnum og skrifað af Stefáni Geir Þórissyni hæstaréttarlögmanni, kemur m.a. fram að verulegar líkur séu á því að fyrirhuguð gjaldtaka standist ekki ákvæði tiltekinna greina EES-samningsins og sjónarmið um að auka ríkistekjur sé ófullnægjandi réttlætingarástæða fyrir gjaldtökunni. Áformin feli í sér mismunun og bent er á dóm Evrópudómstólsins í máli gegn Ítalíu í því samhengi.

Lesa má nánar um málið á bls.6 í Morgunblaðinu í dag

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅