Segir grunnstoðum ekki sinnt
Guðlaugur Þór segir ríkisstjórnina ekki hafa raunverulegan áhuga á öryggis- og varnarmálum. mbl.is/Eyþór Árnason
Ríkisstjórnin hefur ekki nokkurn áhuga á öryggis- og varnarmálum segir Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður. Það sýni sig meðal annars í þeim aðbúnaði sem sérsveit ríkislögreglustjóra er boðið upp á.
Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að mikil þörf væri á að endurnýja bílaflota sérsveitarinnar vegna álags en einnig vegna bilana þar sem ökutækin séu komin til ára sinna. „Við erum að kalla eftir frekari upplýsingum um fjárlaganefnd vegna þess að þær upplýsingar sem við höfum fengið er í besta falli hægt að kalla efnisyfirlit og þurftum við þó að bíða eftir þeim í heilt ár. Ekki þarf þó að skoða þetta lengi til að átta sig á að grunnstoðum er ekki sinnt og segja má að þar sé sérsveitin efst á blaði. Frétt ykkar í Morgunblaðinu í dag [í gær] er enn ein staðfestingin á því. Þarna fer ekki saman hljóð og mynd,“ segir Guðlaugur Þór og segir stöðuna mikið áhyggjuefni.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗