Ýta ekki gullflögum að kúnnum
Hafsteinn segir það vera hag Vistrós að öllum gangi vel og markmiðið sé að vera traustur og stöðugur samstarfsaðili, sama hvernig árar. Morgunblaðið/Eyþór
Stóreldhúsasvið heildverslunarinnar Danóls, sem er hluti af Beru hf., hefur fengið nýtt nafn og ásýnd. Sviðið mun hér eftir starfa undir merkjum Vistrós.
Sölu- og markaðsstjórinn Hafsteinn Snæland segir í samtali við Morgunblaðið að með breytingunni sé lagður grunnur að nýjum kafla í þjónustu Danóls við stóreldhús og veitingamarkaðinn. Áhersla sé lögð á fagþekkingu, áreiðanleika og öflugt samstarf við viðskiptavini. „Viðskiptavinir okkar vilja miklu meira en bara örugga afhendingu. Þeir vilja nýjar hugmyndir, spennandi hráefni og gæðavörur sem hjálpa þeim að skera sig úr án þess að taka óþarfa áhættu. Vistró ætlar að tryggja allt sem eldhúsið þarf og kveikja um leið á nýjum hugmyndum sem markaðinn vantar,“ segir Hafsteinn.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗