Katrín kann að halda partí
Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra hefur geysts fram á ritvöllinn enn einu sinni og á dögunum fagnaði hún nýjustu glæpasögu sinni, Vorblóti. Teitið fór fram á Listasafni Reykjavíkur og var fjör í salnum.
Vel var mætt í boðið hjá Katrínu sem er bæði vinamörg og vinsæl. Þangað mætti Lísa Kristjánsdóttir fyrrverandi aðstoðarmaður Katrínar og núverandi vert á Kramber, Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins, Illugi Gunnarsson fyrrverandi menntamálaráðherra og núverandi skyrútflytjandi, Páll Valsson rithöfundur og útgefandi, Ragnhildur Hjaltadóttir fyrrverandi ráðuneytisstjóri, Úlfar Þormóðsson rithöfundur, Fríða Björk Ingvarsdóttir fyrrverandi rektor Listaháskóla Íslands og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir fyrrverandi varaforseti Alþingis og móðir uppistandarans Jakobs Birgissonar.
Í Vorblóti skrifar hún um Vigdísi Magnúsdóttur sem gefist hefur upp á doktorsnámi sínu í heimspeki. Hún ákveður að hoppa upp á andlega vagninn og fara að kenna fólki hugleiðslu. Hún auglýsir helgarnámskeið í glæsihúsi rétt fyrir utan Hveragerð þar sem fólki er lofað því að læra nýjar leiðir til að öðlast innri ró og næra andann. Þetta gengur allt eins og í sögu þangað til morð framið.
Vorblót er fyrsta glæpasaga Katrínar en hún hefur rannsakað glæpasögur um langa hríð og kennt kúrs um þær hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Hans Jóhannsson fiðlusmiður, Fríða Björk Ingvarsdóttir fyrrverandi rektor Listaháskóla Íslands og Ragnhildur Hjaltadóttir fyrrverandi ráðuneytisstjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir fyrrverandi varaforseti Alþingis og móðir Jakobs Birgissonar. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Sigríður Björk Guðjónsdóttir fyrrverandi ríkislögreglustjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Úlfar Þormóðsson rithöfundur, Egill Eðvaldsson listamaður og Kristín Jórunn Hjartardóttir sunddrottning. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Nanna Hlíf Ingvadóttir, Vigdís Jakobsdóttir og Ragnhildur Hjaltadóttir fyrrverandi ráðuneytisstjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Júlíus Viggó Ólafsson formaður SUS og Lísa Kristjánsdóttir fyrrverandi aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttur. mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 Mbl.is - Smartland - Samkvæmislífið,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗











