Lét vita af sér í Kaupmannahöfn
FC Kaupmannahöfn sigraði Iberia, 2:1, á heimavelli í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í dönsku höfuðborginni í kvöld.
Viktor Bjarki Daðason lék allan leikinn og átti risastóran þátt í fyrra marki danska stórveldisins.
Markið kom úr víti þegar brotið var á Viktori innan teigs.
Gunnar Orri Olsen og Rúnar Alex Rúnarsson voru allan tímann á bekknum hjá FCK.
Kristall Máni Ingason lék allan leikinn og lagði upp mark Brann í 1:1-jafntefli gegn St. Truidense á útivelli.
Sævar Atli Magnússon kom inn á hjá Brann á 62. mínútu. Kjartan Már Kjartansson og Eggert Aron Guðmundsson eru meiddir.
Önnur úrslit:
Mónakó 2:0 Nordsjælland
Panathinaikos 2:1 CSKA Sofia
Getafe 0:1 Brighton
Twente 3:1 Pafos
Lugano 3:0 Kauno Zalgiris
Craiova 2:0 Egnatia
Riga 1:1 Jablonec
Standings provided by
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗