Þrír lögmenn eiga að verja Ísland

Innlent | mbl | 5.11.2026 | 21:45

Fanney Rós Þorsteinsdóttir , Helga Melkorka Óttarsdóttir og Jóhannes Karl Sveinsson.

Þrír lögmennhafa verið fengnir til að annast málsvörn Íslands með utanríkisráðuneytinu gegn Eftirlitstofnun EFTA sem hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu vegna bókunar 35 við EES-samninginn.

Þetta kemur fram í minnisblaði utanríkisráðherra til utanríkismálanefndar, sem birt var í gær.

Tekið eindregna afstöðu með lagabreytingunni

Þeir eru Fanney Rós Þorsteinsdóttir ríkislögmaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir hæstaréttarlögmaður hjá LOGOS og Jóhannes Karl Sveinsson hæstaréttarlögmaður hjá Landslögum.

Jóhannes Karl hefur opinberlega tekið eindregna afstöðu með lagabreytingunni sem ESA krefst.

Í blaðagrein í október 2023 taldi hann til dæmis að frumvarpið fæli í sér löngu tímabærar efndir á 30 ára gamalli skuldbindingu Íslands.

Í þeirri grein lýsti hann einnig því áliti sínu að mál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum myndi að líkindum enda með niðurstöðu ESA í vil.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅