Virtust hin fullkomna fjölskylda - Skaut eiginkonuna, fimm börn þeirra og tengdamömmu áður en hann sneri byssunni að sjálfum sér
Mál Michael Haight frá árinu 2023 er viðfangsefni sérþáttar á sjónvarpsstöðinni Investigation Discovery sem ber heitið Toxic: What Happened in the Haight House?
Michael Haight, Tausha Haight og börnin þeirra fimm virtust vera hin fullkomna fjölskylda frá Utah, en bak við luktar dyr var veruleikinn allt annar. Michael var sakaður um ofbeldisfulla hegðun áður en hann drap fjölskyldu sína.
Ár af meintu andlegu og líkamlegu ofbeldi, fjárhagslegri stjórnun og stjórnsamri hegðun enduðu með skelfilegum hætti fyrir fjölskylduna. Snemma morguns þann 4. janúar 2023 skaut Michael, 42 ára, eiginkonu sína Taushu (40 ára), börnin þeirra fimm, Macie (17 ára), Briley (12 ára), Siennu (7 ára), Ammon (7 ára) og Gavin (4 ára), ásamt tengdamóður sinni, Gail Earl (78 ára), þar sem þau sváfu á heimili sínu í Enoch í Utah.
Í kjölfarið beindi Michael byssunni að sjálfum sér og veitti sjálfum sér banvænt skotsár. Þótt íbúar litla bæjarins hafi orðið fyrir miklu áfalli vegna morðanna, leiddu rannsóknir í ljós að ýmis aðvörunarmerki höfðu komið fram í hegðun Michaels á árunum fyrir þennan harmleik.
Elizabeth Chambers tekur málið til umfjöllunar í tveggja klukkustunda þætti á sjónvarpsstöðinni Investigation Discovery, sem ber heitið Toxic: What Happened in the Haight House?. Þátturinn er aðgengilegur á streymisveitunni HBO Max.
Michael og Tausha giftu sig árið 2003 og eignuðust fimm börn á næstu 15 árum
Michael ólst upp sem meðlimur í Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu. Fjölskylda hans átti djúpar rætur innan kirkjunnar, einn af forfeðrum hans var lífvörður Josephs Smith, stofnanda mormónatrúar, og í heimabyggð þeirra í Cedar City í Utah, en faðir hans, Robin Haight, starfaði þar sem tannlæknir.
Michael kynntist Taushu árið 2002 þegar þau voru bæði nemendur við Southern Utah University. Þau gengu í hjónaband ári síðar, þegar Michael var 23 ára og Tausha 21 árs, og létu innsigla hjónaband sitt í musteri kirkjunnar. Um er að ræða helga athöfn sem, samkvæmt kenningum mormónakirkjunnar, bindur eiginmann, eiginkonu og börn þeirra saman um alla eilífð. Þau settust að í Enoch, litlum bæ í dreifbýli, um 250 mílur suður af Salt Lake City.
Michael starfaði sem tryggingaráðgjafi í nálægri borg, Cedar City, en Tausha var heima með börnin þeirra fimm: dæturnar Macie (fædd 2005) og Brilee (2010), tvíburana Siennu og Ammon (2015) og soninn Gavin (2018).
Að sögn nágranna og annarra íbúa á svæðinu létu Haight-hjónin það líta út fyrir að þau væru ástrík og hamingjusöm fjölskylda. „Þetta var einfaldlega dásamleg, dásamleg fjölskylda,“ sagði kirkjufélagi þeirra við The New York Times.
Macie tilkynnti yfirvöldum ítrekað um ofbeldisfulla hegðun Michaels
Þótt Michael hafi aldrei verið ákærður fyrir glæp, var hann sakaður um ofbeldi í mörgum tilvikum á árunum 2020 til 2023. Að sögn kom lögreglan í Enoch og barnaverndaryfirvöld í Utah (Utah Division of Child and Family Services) í fyrsta sinn á heimili Haight-fjölskyldunnar sumarið 2020 til að rannsaka ásakanir um ofbeldi gegn börnum.
Samkvæmt lögregluskýrslum sakaði elsta dóttir hjónanna, Macie, föður sinn um að hafa beitt hana bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi í nokkur ár. Hún lýsti þremur tilvikum þar sem faðirinn á að hafa beitt hana líkamlegu ofbeldi; meðal annars sagði hún að hann hefði gripið í axlir hennar og hrist hana, auk þess að hafa lagt hendur sínar „um háls hennar og kyrkt hana“.
Macie sagði einnig rannsakendum að mikið hefði verið um „öskur og andlegt ofbeldi“ sem beindist að henni og móður hennar, Taushu. Hún hélt því fram að Michael hefði talað um hversu „heimsk og löt“ Tausha væri, og að hann hefði tekið af henni símann til að koma í veg fyrir að hún gæti farið að heiman.
Þótt Michael hafi viðurkennt gagnvart lögreglu „að hann missi stjórn á skapi sínu og öskri á börnin,“ neitaði hann ásökunum um ofbeldi.
Samkvæmt The New York Times sagði rannsóknarlögreglumaðurinn við Michael að hegðun hans „hefði verið mjög nálægt því að teljast líkamsárás,“ en hann var ekki ákærður fyrir neinn glæp á þeim tíma þar sem sönnunargögn þóttu ófullnægjandi.
Í kjölfar þessa atviks bárust barnaverndaryfirvöldum í Utah tvær tilkynningar til viðbótar sem vörðuðu Michael og ásakanir um ofbeldi gegn börnum.
Í janúar 2021 hafði Macie samband við barnaverndaryfirvöld og greindi frá atviki þar sem Michael var sagður hafa ekið á hættulegan og óstöðugan hátt, en í bílnum voru Tausha og öll börnin, að sögn Toxic. Hann á að hafa sveigt bílnum svo harkalega að börnin fengu rauð för eftir öryggisbeltin. Lögreglan kom þó ekki að málinu og var tilkynningunni hafnað.
Þann 8. desember 2022 hafði Macie samband við barnaverndaryfirvöld í þriðja sinn og hélt því fram að Michael hefði sýnt af sér ofbeldisfulla hegðun gagnvart yngri bróður hennar, Ammon, og kastað honum í gólfið. Þar sem um var að ræða þriðju ásökunina um ofbeldi var Michael boðaður til skýrslutöku hjá lögreglu þann 5. janúar 2023.
Tausha sótti um skilnað frá Michael í desember 2022
Á síðustu vikum ársins 2022 lenti Michael í frekari vandræðum, til viðbótar við þriðju ásökunina um ofbeldi. Í desember var honum sagt upp störfum hjá tryggingafyrirtækinu þar sem hann starfaði, vegna brots á reglum fyrirtækisins.
Uppsögnin batt í raun enda á feril Michaels í tryggingageiranum þar sem hún gerði honum erfitt fyrir að fá vinnu annars staðar og hann fékk ekki jólabónusinn sinn. Líkt og fram kemur í þættinum hélt hann þó áfram að hafa ritara sinn hjá sér og mæta á skrifstofuna í margar vikur, til að láta líta út fyrir að hann væri enn í vinnu.
Sama mánuð, þann 21. desember, sótti Tausha um skilnað. Hún ákvað þó að láta hann ekki fá skilnaðarpappírana fyrr en eftir jólin, þann 27. desember. Eftir að Michael hafði fengið pappírana í hendur átti hann að flytja út af heimilinu í Enoch, en hann neitaði og hélt sig í staðinn í kjallaranum.
Lögfræðingar Taushu tjáðu henni að hægt væri að láta fjarlægja Michael af heimilinu með valdi. Dagsetning fyrir það var ákveðin þann 5. janúar 2023, sama dag og lögreglan átti að taka af honum skýrslu vegna ásakana um ofbeldi gegn börnum.
„Ég geri þetta vegna þess að ég get ekki lengur sætt mig við það hvernig þú hefur komið fram við mig,“ sagði Tausha við Michael í myndskeiði sem tekið var upp í leynd.
Þar sem rannsókn vegna misþyrminga á barni, yfirvofandi skilnaður og lagaleg krafa um að hann yfirgæfi heimilið lágu öll fyrir, varð hegðun Michaels sífellt óútreiknanlegri og meira áhyggjuefni.
Þann 2. janúar 2023 fjarlægði hann öll skotvopn af heimilinu, þar á meðal skammbyssu sem Tausha geymdi í náttborðinu sínu.
Hann framkvæmdi einnig nokkrar óhugnanlegar leitir á netinu, þar á meðal: „Hvernig hljómar skot?“ og „Myndi nágranni heyra skot í bílskúr?“
Michael neitaði að axla ábyrgð á því að hafa drepið fjölskyldu sína
Að morgni 4. janúar 2023 hringdi meðferðaraðili Taushu í lögregluna í Enoch og bað um að athugað yrði með velferð hennar, þar sem hún mætti ekki í bókaðan tíma.
Bróðir Michaels hringdi einnig í lögregluna eftir að Michael mætti ekki til vinnu. Hann hafði þó skilið eftir launaseðil ritara síns og skjöl varðandi eignastýringu (e. living trust) á skrifborðinu sínu.
Á meðan lögreglan reyndi að ná sambandi við fjölskylduna fóru nágrannar inn í húsið og urðu vitni að skelfilegri sjón. Tausha, Macie, Brilee, Sienna, Ammon, Gavin og móðir Taushu, Gail, fundust öll látin í svefnherbergjum sínum, með skotsár.
Lögreglan fann síðan Michael í lítilli líkamsræktaraðstöðu í kjallaranum; hann var látinn eftir að hafa skotið sjálfan sig. Sagt er að hann hafi reynt að dempa hljóðið af skotunum með því að setja pappír í eyrun á sér.
Michael skildi eftir bréf þar sem hann neitaði að axla ábyrgð á morðunum og kenndi í staðinn fjölskyldu sinni um.
„Þetta er vitleysa og ég þoli þetta ekki einn dag í viðbót,“ skrifaði hann meðal annars. „Ég vil frekar rotna í helvíti en að þola einn dag í viðbót af þessari stjórnun og undirokun.“
Lögreglumaður við heimilið.
Mikil reiði vegna minningargreinar um Michael þar sem honum var lýst sem ástríkum eiginmanni og föður
Morðin hryllilegu og sjálfsvígið skók samfélagið í Enoch verulega.
„Þetta er gríðarlegt áfall fyrir fjölmargar fjölskyldur sem hafa varið ótal kvöldstundum með þessu fólki sem nú er horfið,“ sagði Geoffrey Chestnut, bæjarstjóri í Enoch, á blaðamannafundi í kjölfar morðanna.
Áfallið og sorgin breyttust hins vegar fljótt í reiði þegar minningargrein um Michael lýsti honum sem virtum samfélagsþegn, ástríkum föður og eiginmanni. Í minningargreininni, sem birtist í blaðinu The Spectrum í Cedar City, var Michael lýst sem „framúrskarandi“ nemanda og skáta sem „lifði lífi í þjónustu við aðra.“ Þar kom einnig fram að Michael hefði litið á hvert og eitt af börnum sínum fimm sem „dýrmætt kraftaverk.“ „Michael lagði áherslu á að verja gæðastundum með hverju og einu barna sinna,“ stóð í minningargreininni. „Michael naut þess að skapa minningar með fjölskyldunni.“
Í minningargreininni var hvergi minnst á hlutdeild Michaels í morðunum á fjölskyldu hans; dauðsföllunum var þess í stað lýst sem „óhugsandi harmleik.“ Eftir harðar athugasemdir á netinu fjarlægði The Spectrum minningargreinina af vefsíðu sinni.
Blóm lögð við heimili fjölskyldunnar.
Morðin á Haight-fjölskyldunni leiddu til breytinga á stefnu Utah-fylkis varðandi heimilisofbeldi
Eftir morðin á Taushu, börnum hennar og móður hennar gerði Utah fylki verulegar breytingar á stefnu sinni um heimilisofbeldi í öllu fylkinu.
Fyrir morðin gátu einstakar lögregludeildir í Utah ákveðið hvenær þær ættu að nota Lethality Assessment Protocol, spurningalista sem hannaður var til að bera kennsl á fórnarlömb heimilisofbeldis sem voru í mikilli hættu á banvænu ofbeldi. Tölfræði var haldin innan hverrar lögregludeildar og engin fylgdist var með árásaraðilum í öllu fylkinu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗