Silfrastaðakirkja snýr aftur
Silfrastaðakirkja var flutt að nýju á sinn stað í Blönduhlíð í Skagafirði í gær. Hún var tekin af grunni í október 2021 og flutt út á Sauðárkrók þar sem unnið var að endurbótum.
Sigríður Gunnarsdóttir, prófastur Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmis, segir flutninginn hafa gengið eins og í sögu. Hún segir kirkjuna ókláraða að innan og turni hennar og gluggum eigi eftir að koma fyrir. Þá eigi eftir að mála hana að utan. Sigríður bindur vonir við að kirkjustarf geti hafist í kirkjunni á næsta ári. „Það er voða gott að fá hana heim aftur. Það var svo tómlegt að hafa hana ekki á sínum stað,“ segir Sigríður í samtali við Morgunblaðið.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗