Melania Trump heldur áfram að beita sér

Melania Trump afhenti erindrekum Rússa og Úkraínumanna bréf til forseta þjóðanna. AFP

Melania Trump forsetafrú Bandaríkjanna kallaði eftir nýju og varanlegu vopnahléi í Úkraínu þegar hún tók á móti embættismönnum frá Úkraínu og Rússlandi í Hvíta húsinu í dag.

Forsetafrúin hafði áður átt þátt í að semja um sex daga vopnahlé í bænum Oleshky, sem er hernuminn af Rússum, en því lauk á sunnudag. Þetta stutta hlé var eitt eftirtektarverðasta dæmið um samvinnu Rússa og Úkraínumanna frá því að innrás Rússa árið 2022.

„Ég vona að Oleshky verði hvatning til víðtækari friðar. Sérhver veigamikil umbreyting hefst með litlum neista,“ sagði Melania Trump við fréttamenn á sameiginlegum blaðamannafundi með Kirill Dmitriev, sérlegum erindreka Rússlandsforseta, og David Arakhamia, samningamanni Úkraínu um vopnahlé.

Sendi forsetunum bréf

„Nú verðum við að nýta það hugrekki sem við sýndum í Oleshky til að finna sameiginlegan grundvöll í gegnum sameiginlega umhyggju þegar kemur að þjáningum saklauss fólks,“ bætti Trump við. „Saman getum við skapað eitthvað varanlegra en tímabundið vopnahlé.“

Hún lauk máli sínu á því að segjast hafa skrifað persónuleg bréf til Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta og úkraínsks starfsbróður hans, Volodimírs Selenskís.

„Vopnahléið í Oleshky hefði ekki verið mögulegt án Pútíns forseta og Selenskís forseta. Samvinna þeirra skapar mikilvægt fordæmi til að efla frið um allt svæðið,“ bætti hún við.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅