Sweeney íhugar að flytja í ensku sveitina
Bandaríska leikkonan Sydney Sweeney er sögð hafa augastað á fasteign í Cotswolds-héraði á Englandi, þar sem fjölmargar stórstjörnur hafa komið sér fyrir á undanförnum árum.
Samkvæmt heimildum breska blaðsins The Sun hefur Sweeney, sem er 27 ára, skoðað fasteignir í litla þorpinu Little Tew og hyggst skipta tíma sínum á milli ensku sveitarinnar og heimila sinna í Los Angeles og á Florida Keys.
Heimildarmaður blaðsins segir leikkonuna hafa heimsótt Cotswolds tvisvar á síðustu tíu mánuðum og heillast af kyrrðinni og sveitasælunni. Hún hafi jafnframt skoðað fasteign á svæðinu á síðustu þremur mánuðum.
Vill láta lítið fyrir sér fara
Sweeney er sögð kunna sérstaklega vel að meta að geta farið ferða sinna án þess að vekja mikla athygli, enda séu íbúar svæðisins vanir því að sjá þekkt andlit. Meðal þeirra sem eiga fasteignir í Cotswolds eru Beckham-hjónin og bandaríska sjónvarpskonan Ellen DeGeneres.
Leikkonan hefur áður dvalið á lúxusstaðnum Soho Farmhouse, skammt frá Little Tew, þar sem hún naut sveitalífsins og fór meðal annars í útreiðartúra og hjólaferðir.
Vangaveltur hafa einnig verið uppi um að Sweeney komi til greina í hlutverk í næstu James Bond-mynd. Leikkonan Trina Parks, sem lék í Bond-myndinni Diamonds Are Forever árið 1971, hefur lýst yfir stuðningi við þá hugmynd og segir Sweeney hafa bæði leikhæfileika og útgeislun sem myndi henta hlutverkinu vel.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗