Keflvíkingar styrkja sig

Keflvíkingar hafa fengið liðstyrk.

Keflvíkingar hafa fengið liðstyrk. mbl.is/Eyþór

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við bandaríska framherjann Da'Nasia Hood.

Hún lék með Texas State University í bandaríska háskólaboltanum þar sem hún var ein af lykilleikmönnum liðsins.

Hún hefur einnig reynslu af Evrópuboltanum en hún lék með Basket Namur Capitale í efstu deild Belgíu tímabilið 2024/25 og Liège tímabilið 2025/26.

Keflavík hefur farið illa af stað í úrvalsdeildinni í vetur og er liðið aðeins með einn sigur í fyrstu sex leikjunum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅