Meistararnir komnir á skrið - Tindastóll aftur á sigurbraut
Íslandsmeistarar Grindavíkur unnu sinn þriðja sigur í röð í úrvalsdeild karla í körfubolta er liðið lagði Ármann, 100:81, í fimmtu umferðinni í Laugardalshöll í kvöld.
Ármann var með 29:20-forystu eftir fyrsta leikhlutann en Grindvíkingar svöruðu með þremur góðum leikhlutum og unnu að lokum öruggan sigur.
Unnsteinn Rúnar Kárason kom sterkur af bekknum hjá Grindavík og var stigahæstur með 20 stig. Jeremy Pargo gerði 16.
Kinyon Hodges skoraði 23 stig fyrir Ármann. Styrmir Jónasson og Arnaldur Grímsson komu næstir með 15 stig hvor.
Tindastóll sigraði fyrir austan
Tindastóll gerði góða ferð austur og sigraði Hött, 80:73, á útivelli.
Tindastóll var með 70:57-forskot eftir þrjá leikhluta og Skagfirðingar héldu út þrátt fyrir áhlaup heimamanna í fjórða leikhlutanum.
Sigtryggur Arnar Björnsson var stigahæstur hjá Tindastóli með 22 stig og Júlíus Orri Ágústsson kom næstur með 18.
Joshua Martin og Aleksandar Pantelic voru stigahæstir hjá Hetti með 18 stig hvor.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗