Veitir stjórnarmyndunarumboð á sunnudaginn

Erlent | mbl | 5.11.2026 | 21:00

67 þingmenn hvöttu Herzog til að fela umboðið Gadi Eisenkot.

67 þingmenn hvöttu Herzog til að fela umboðið Gadi Eisenkot. Samsett mynd

Isaac Herzog, forseti Ísraels, mun tilkynna á sunnudaginn hverjum hann muni fela að reyna að mynda nýja ríkisstjórn.

Hann hefur nú rætt við leiðtoga allra flokka landsins í kjölfar kosninga.

Eisenkot fékk fleiri meðmæli

„Ég hyggst fela þingmanni á Knesset (ísraelska þinginu) að mynda ríkisstjórn núna á sunnudaginn,“ sagði Herzog í ávarpi í dag.

Í samtölum við leiðtoga flokkanna hafi 46 þingmenn hvatt hann til að fela Netanjahú umboðið. 67 þingmenn hvöttu hann til að fela umboðið Gadi Eisenkot.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅