KR vann toppslaginn

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson leikmaður KR-inga í baráttunni í kvöld.

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson leikmaður KR-inga í baráttunni í kvöld. mbl.is/Eythor Arnason

Það var hörkustemning í Kaldalónshöllinni á Álftanesi þegar heimamenn tóku á móti KR í fimmtu umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í kvöld og enduðu leikar þannig að KR-ingar fóru með sigur af hólmi 102:94.

Eftir leikinn eru KR-ingar með fullt hús stiga á meðan Álftanes tapaði fyrsta leik sínum á tímabilinu.

Frank Aron Booker.

Frank Aron Booker. mbl.is/Eythor Arnason

KR-ingar unnu uppkastið í kvöld og skoruðu fyrstu körfu leiksins eftir aðeins tvær sekúndur eftir layup-körfu Adams Ramstedt. Má segja að KR-ingar hafi sett tóninn með körfunni því þeir leiddu allan fyrri hálfleikinn.

Álftnesingar voru aldrei langt undan en áttu þó í meira basli með að koma boltanum ofan í körfuna þrátt fyrir fína spilamennsku.

Dedrick Deon Basile og Rafail Lanaras eigast við í leiknum í kvöld. Eythor Arnason

KR-ingar náðu mest 10 stiga forskoti í fyrri hálfleiknum sem var niðurstaðan í hálfleik í stöðunni 51:41 fyrir KR.

Jordan Semple skoraði 15 stig fyrir Álftanes í fyrri hálfleik. Haukur Helgi Briem tók sex fráköst. Dedrick Deon Basile gaf sjö stoðsendingar.

Linards Jaunzems skoraði 15 stig fyrir KR í fyrri hálfleik og tók einnig fimm fráköst. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson gaf sjö stoðsendingar.

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson ræðir við einn af dómurum leiksins.

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson ræðir við einn af dómurum leiksins. mbl.is/Eythor Arnason

KR-ingar náðu 12 stiga forskoti í byrjun þriðja leikhluta en þá tóku leikmenn Álftaness til sinna ráða og hófu alvöru áhlaup. Þegar rúmlega þrjár mínútur voru liðnar af leikhlutanum var munurinn kominn niður í eitt stig í stöðunni 61:60 fyrir KR-inga sem tóku leikhlé í kjölfarið.

Það breytti engu því Jordan Semple kom Álftanesi yfir í fyrsta skiptið í leiknum í stöðunni 62:61 og bætti síðan við annarri körfu og kom þeim 64:61 yfir.

KR-ingar náðu að jafna leikinn í stöðunni 71:71 með körfu úr vítaskoti þegar rétt tæplega tvær mínútur voru eftir af þriðja leikhluta. Því svöruðu heimamenn með þriggja stiga körfu og var þar að verki Dúi Þór Jónsson og staðan var orðin 74:71 fyrir Álftanes.

Frank Aron Booker í frákastabaráttunni.

Frank Aron Booker í frákastabaráttunni. mbl.is/Eythor Arnason

KR-ingum tókst að skora flautukörfu á lokasekúndu þriðja leikhluta og minnka muninn niður í eitt stig fyrir fjórða leikhlutann. Var þar að verki Friðrik Anton Jónsson og staðan var 74:73 fyrir Álftanes eftir þriðja leikhlutann.

KR-ingar byrjuðu fjórða leikhlutann á þriggja stiga körfu frá Adam Ramstedt og Vesturbæingar voru komnir með forskotið á nýjan leik.

Leikmenn Álftaness voru ekki á því að gefa sigurinn eftir í kvöld og jöfnuðu leikinn í stöðunni 78:78 með körfu frá Jordan Semple. Luka Gasic jafnaði síðan aftur í stöðunni 80:80 eftir að Þorvaldur Orri Árnason hafði komið KR-ingum yfir.

Jakob Örn Sigurðarson þjálfari KR-inga ræðir við leikmenn sína í kvöld. mbl.is/Eythor Arnason

Luka Gasic setti niður þriggja stiga körfu fyrir Álftanes og kom þeim yfir í stöðunni 83:82 sem Dedrick Basile fylgdi síðan eftir með tveggja stiga körfu og staðan var orðin 85:82 fyrir Álftanes.

KR-ingar gáfust ekki upp og skoruðu tvær körfur í röð í kjölfarið. Staðan var 86:85 fyrir KR-inga.

Álftanes jafnaði leikinn með vítaskoti í stöðunni 86:86 en þá komu tvær körfur í röð frá Rafail Lanaras og staðan var orðin 90:86 fyrir KR-inga þegar 2 mínútur og 11 sekúndur voru til leiksloka.

KR-ingar komust í átta stiga forskot í stöðunni 94:86 eftir að Jordan Semple braut illa á Þóri Guðmundi og dæmd var óíþróttamannsleg villa. Þórir skoraði úr báðum vítaskotum sínum.

Eftir þetta var róðurinn orðinn þungur fyrir Álftanes sem þurfti alltaf að brjóta þegar KR-ingar fengu boltann.

KR-ingar voru öflugir á vítalínunni og nýttu skotin sín vel. KR-ingar eru því enn ósigraðir í úrvalsdeildinni á meðan stjörnum prýtt Álftanes fer ekki taplaust í gegnum deildarkeppnina í vetur.

Luka Gasic sækir að körfu KR-inga í kvöld.

Luka Gasic sækir að körfu KR-inga í kvöld. mbl.is/Eythor Arnason

Jordan Semple skoraði 26 stig fyrir Álftanes í kvöld og tók sjö fráköst. Dedrick Basile gaf 10 stoðsendingar.

Linards Jaunzems skoraði 26 stig fyrir KR-inga í kvöld. Hann tók einnig níu fráköst. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson gaf 10 stoðsendingar.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅