Segir árangur United engu breyta

Leikmenn United fagna í sigrinum á Roma í vikunni.

Leikmenn United fagna í sigrinum á Roma í vikunni. AFP/Oli Scarff

Avram Glazer, einn eigenda enska knattspyrnufélagsins Manchester United, hefur haldið því fram að viðskiptalegur styrkur félagsins sé ekki háður árangri á vellinum, samkvæmt The Athletic.

Glazer, sem talaði á íþróttafjárfestingaráðstefnu Deutsche Bank í London í september, bar United saman við New York Yankees og Dallas Cowboys, en vörumerki þeirra eru enn sterk þrátt fyrir langa bið eftir stórum titlum.

Ummæli hans voru í takt við yfirlýsingu Ed Woodward, fyrrverandi framkvæmdastjóra United, frá árinu 2018: „Frammistaða liðsins hefur í raun engin marktæk áhrif á það sem við getum gert á viðskiptahlið rekstrarins.“

Aðilar innan greinarinnar véfengdu þetta sjónarmið og sögðu að slæm úrslit gerðu það erfiðara að tryggja ábatasama samninga.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅