„Sennilega galnasti reyfari ársins“

Þjóðverjar lofa frásagnargleði Halldórs Armands.

Þjóðverjar lofa frásagnargleði Halldórs Armands. Morgunblaðið/Eyþór

„Hinn ungi Halldór Armand er ein efnilegasta rödd íslenskrar bókmenntasenu,“ segir í upphafi umsagnar á vef NDR, þýska ríkisútvarpsins í Hamborg, um bókina Mikilvægt rusl, sem er nýkomin út í þýskri þýðingu.

Þar segir Katja Essbach að sjaldan hafi spennusaga hafist með furðulegri hætti en þegar ruslakarlinn Gómur finnur nef í ruslinu við hús í Reykjavík.

„Hvernig þetta allt hangir saman, afskorna nefið og bankahrun, rekur Halldór af miklum frumleika, fullur af fásinnu og fyndni,“ skrifar Essbach. „Nokkrir útúrdúrar fylgja einnig. Tveir gíraffakálfar og íslenski bókmenntageirinn leika ekki lítið hlutverk. Mikilvægt rusler sennilega galnasti reyfari ársins.“

Einnig var fjallað um bókina í spjalli í þætti um bækur á annarri stöð þýska ríkismiðilsins, WDRí Köln. Þar sagði rýnirinn, Philipp Seehausen bóksali frá Bonn, að hann hefði fyrst og fremst hlegið fáránlega mikið. „Höfundur er fullur af frásagnargleði, fær fyndnar en grófar hugmyndir, tekst að gera persónurnar viðfelldnar og um leið ristir frásögnin djúpt,“ sagði bóksalinn og bætti við. „Þetta er óvenjulegasta fjármálaspennusaga sem ég hef nokkurn tíma lesið.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅