Keflavík vann spennuleik í Breiðholti

Bragi Guðmundsson skoraði 18 stig.

Bragi Guðmundsson skoraði 18 stig. mbl.is/Karítas

Keflavík hafði betur gegn ÍR, 100:90, á útivelli í 5. umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í kvöld.

Keflvíkingar eru nú með átta stig, eins og Álftanes, Valur og Tindastóll í 2.-5. sæti. ÍR er aðeins með tvö stig í níunda sæti.

Leikurinn var jafn og spennandi nær allan tímann og var staðan fyrir fjórða og síðasta leikhlutann 69:67, Keflavík í vil.

Það voru svo Keflvíkingar sem voru mun sterkari í fjórða leikhlutanum.

Jamir Chaplin var stigahæstur hjá Keflavík með 31 stig og tók hann einnig 13 fráköst. Jaka Brodnik bætti við 19 stigum.

Jarrett Bryant skoraði 27 stig fyrir ÍR og Kevin Kone 20.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅