Tæknihlutabréf hríðfalla eftir sigur demókrata

Nasdaq 100-vísitalan lækkaði mest um 6,4 prósent.

Nasdaq 100-vísitalan lækkaði mest um 6,4 prósent. AFP

Gengi bandarískra tæknihlutabréfa hríðféll í dag. Fjárfestar óttast að afgerandi sigur demókrata í nýafstöðnum þingkosningum muni hægja á þeim mikla uppgangi í gervigreind sem knúið hefur markaðinn áfram.

Financial Times greinir frá.

Nasdaq 100-vísitalan lækkaði mest um 6,4 prósent en um klukkan 18 að íslenskum tíma nam lækkunin um sex prósentum.

Frambjóðendur gegn gagnaverum

Markaðir hækkuðu raunar í fyrstu eftir að ljóst varð að demókratar hefðu unnið stórsigur á Repúblikanaflokki Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.

Síðan hefur hljóðið í greinendum og sjóðstjórum þyngst og efasemdir vaknað um að fjárfestingar í gervigreind haldi áfram að aukast.

Í ríkjum á borð við Texas, Ohio og Georgíu náðu frambjóðendur kjöri sem höfðu talað gegn byggingu gagnavera. Fjárfestar óttast að þeir muni hægja á uppbyggingunni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅