Sex fengu einn í einkunn

Leikmenn Lens ganga svekktir af velli.

Leikmenn Lens ganga svekktir af velli. AFP/Lo Presti

Franska dagblaðið L’Équipe kallaði Lens „aumkunarvert“ eftir 9:1-tap liðsins á heimavelli gegn Como í Meistaradeildinni í knattspyrnu í gær.

Fimm byrjunarliðsmenn Lens fengu einkunnina 1/10, sem og knattspyrnustjórinn Yannick Cahuzac. Enginn leikmaður fékk hærri einkunn en 3/10.

Á forsíðu blaðsins var úrslitunum lýst sem „fáránlegum“ og talað um niðurlægingu sem ætti sér engin fordæmi hjá frönsku félagi í Evrópukeppni.

Como, undir stjórn Cesc Fàbregas, varð fyrsta ítalska félagið til að skora níu mörk í Evrópuleik og vann stærsta útisigur í sögu Meistaradeildarinnar.

Historic player ratings from a historic night. #UCL https://t.co/bTb8w5UqFW

— Robin Bairner (@RBairner) November 5, 2026

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅