Segir árangur United engu breyta
Avram Glazer, einn eigenda enska knattspyrnufélagsins Manchester United, hefur haldið því fram að viðskiptalegur styrkur félagsins sé ekki háður árangri á vellinum, samkvæmt The Athletic.
Glazer, sem talaði á íþróttafjárfestingaráðstefnu Deutsche Bank í London í september, bar United saman við New York Yankees og Dallas Cowboys, en vörumerki þeirra eru enn sterk þrátt fyrir langa bið eftir stórum titlum.
Ummæli hans voru í takt við yfirlýsingu Ed Woodward, fyrrverandi framkvæmdastjóra United, frá árinu 2018: „Frammistaða liðsins hefur í raun engin marktæk áhrif á það sem við getum gert á viðskiptahlið rekstrarins.“
Aðilar innan greinarinnar véfengdu þetta sjónarmið og sögðu að slæm úrslit gerðu það erfiðara að tryggja ábatasama samninga.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗