Fabregas má fara frá Como þegar hann vill - Þarf ekki að borga fyrir hann

Cesc Fabregas, knattspyrnustjóri Como, heldur áfram að vekja athygli í Evrópu eftir ótrúlegan 9-1 sigur liðsins gegn Lens í Meistaradeildinni.

Como situr í fjórða sæti keppninnar og hefur Fabregas verið orðaður við stærri félög.

Spánverjinn er samningsbundinn Como til ársins 2028 en Mirwan Suwarso, stjórnarformaður félagsins, hefur upplýst að hann muni ekki standa í vegi fyrir brottför hans.

„Hann má fara hvert sem hann vill, hvenær sem hann vill. Ég myndi ekki einu sinni krefjast bóta,“ sagði Suwarso í viðtali við Piers Morgan.

Fabregas hefur meðal annars verið orðaður við sín fyrrverandi félög, Arsenal, Chelsea og Barcelona.

„Hann hefur hjálpað okkur að byggja upp félagið og skapað grunninn að því sem við erum í dag.“

„Ég segi alltaf að hann sé okkar Johan Cruyff, rétt eins og Cruyff var fyrir Barcelona.“

Fabregas er jafnframt hluthafi í Como og virðist njóta einstakrar stöðu innan félagsins.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅