Stórsigur lærisveina Alfreðs
Þýskaland vann sannfærandi stórsigur, 42:32, á Belgíu í G-riðli í undankeppni EM karla í handbolta sem fram fer árið 2028 í kvöld.
Alfreð Gíslason þjálfar þýska liðið sem stakk ekki af fyrr en í seinni hálfleik.
Var staðan í leikhléi 22:18 en Þjóðverjar voru mun sterkari í seinni hálfleik og unnu að lokum öruggan sigur.
Marko Grgic skoraði sjö mörk fyrir Þýskaland og Lukas Zerbe gerði sex.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗