„Auðvitað er búið að þrengja að okkur“
Hörð samkeppni á matvörumarkaði átti sinn þátt í því að eigendur Fjarðarkaupa ákváðu að selja verslunina eftir 53 ára rekstur fjölskyldunnar. Þetta segir Gísli Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Fjarðarkaupa, í samtali við Dagmál.
Gísli segir að stóru matvörukeðjurnar hafi þrengt að rekstri Fjarðarkaupa á undanförnum árum og að vöxtur verslunarinnar hafi verið takmarkaður.
„Þetta er náttúrulega hörð samkeppni á markaðnum. Og þessi stóri er náttúrulega búinn að vera síðustu ár, hvað á ég að segja, að þrengja að okkur,“ segir Gísli.
Þrjár Bónusverslanir í nágrenninu
Hann bendir á að samkeppnin í nágrenni Fjarðarkaupa sé mikil og nefnir meðal annars Bónus, Costco, Krónuna og Hagkaup.
„Það eru þrjár Bónusbúðir bara þarna rétt hjá okkur. Costco náttúrulega er kominn þarna. Krónan er með risastóra búð,“ segir Gísli og nefnir jafnframt verslanir í Garðabæ.
„Auðvitað er búið að þrengja að okkur þannig að það hefur ekki verið mikill vöxtur hjá okkur síðustu ár.“
Samkaup taka við rekstrinum
Fjarðarkaup hafa verið í eigu sömu fjölskyldu frá stofnun verslunarinnar fyrir 53 árum. Foreldrar Gísla stofnuðu fyrirtækið en undanfarin ár hefur það verið í eigu hans og þriggja systkina hans.
Nýverið var greint frá því að Samkaup, sem eru í eigu Dranga, hefðu samið um kaup á verslunarrekstri Fjarðarkaupa. Fasteignafélagið Kaldalón kaupir húsnæðið og leigir það Samkaupum.
Í Dagmálum ræðir Gísli um árin í fjölskyldufyrirtækinu, samkeppnina á matvörumarkaði og tilfinningarnar sem fylgja því að kveðja verslunina eftir áratuga starf.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗