Egill og Karen furða sig á hvað vaki fyrir Morgunblaðinu: „Þetta er eitt það ljótasta sem ég hef séð í fréttum á Íslandi“
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason veltir fyrir sér hvað vaki fyrir blaðamönnum Morgunblaðsins með myndbirtingu við frétt sem birtist í blaðinu í dag fimmtudag, en þá daga er Morgunblaðið í frídreifingu inn á flest heimili landsins.
„Þetta er eitt það ljótasta sem ég hef séð í fréttum á Íslandi. Þarna er fjallað um fólk af erlendum uppruna sem þiggur aðstoð frá Reykjavíkurborg. Það fólk kemur frá ýmsum þjóðum,“
segir Egill í færslu sinni.
Með fréttinni í blaðinu er birt mynd Morgunblaðsins af ónafngreindri palestínskri konu með myndatextanum: Palestínumenn hafa látið til sín taka í mótmælum hér á landi.
Segist Egill hafa leitað sér upplýsinga um hver konan sé:
„Mér er tjáð að hún sé einstæð móðir, hörkudugleg, vinni sín störf af trúmennsku og hafi náð góðum tökum á íslensku. Hvað vakir fyrir mönnum að birta svona?“
Fréttin og myndin birtist eins og áður sagði í blaði dagsins, og jafnframt á vef Mbl.is í dag kl. 6. Fréttin var uppfærð kl. 9.37, myndin tekin út og í staðinn birt mynd af Ráðhúsi Reykjavíkur. Myndin af konunni er hins vegar enn við deilingu fréttarinnar á Facebook-síðu Morgunblaðsins.
Karen Kjartansdóttir almannatengill veltir myndbirtingunni einnig fyrir sér og spyr af hverju myndin af konunni sé enn uppi hjá Morgunblaðinu. „Ung kona sem starfar á leikskóla og talar góða íslensku er látin vera andlit fréttar um útlendinga sem þiggja fjárhagsaðstoð.“
Í frétt Morgunblaðsins sem fjallar um heildarútgjöld Reykjavíkurborgar vegna fjárhagsaðstoðar til einstaklinga á síðasta ári, kemur fram að heildarupphæðin var 3.429 milljónir króna. Er það lækkun um 669 milljónir frá árinu 2024.
Um er að ræða svar velferðarsviðs borgarinnar við fyrirspurn Helga Áss Grétarssonar, varaborgarfulltrúa Miðflokksins, sem á sæti í velferðarráði.
Alls nutu 3.408 einstaklingar fjárhagsaðstoðar í fyrra. Fjölmennasti hópurinn, 44,3% eða 1.509 einstaklingar voru íslenskir. Aðrir eru af erlendu bergi brotnir og flestir þeirra frá Úkraínu, 790 einstaklingar.
Palestínumenn koma næstir, 206 einstaklingar eða 6% þeirra sem fengu styrki.
Karen spyr hvort að hefði þótt við hæfi að velja mynd af ljóshærðri úkraínskri konu í fullu starfi sem andlit fréttarinnar þar sem Úkraínumenn eru fjölmennasti hópurinn.
„Það væri auðvitað jafn fráleitt. Hvorug konan á að þurfa að sitja undir því að vera tengd við fjárhagsaðstoð vegna uppruna síns eða útlits.
Þessi mynd fór í prentblaðið, á mbl.is og á Facebook-síðu Morgunblaðsins. Var enginn á leiðinni sem staldraði við og hugsaði: Hvað kemur þessi kona fréttinni við?
Og hvers vegna er myndin enn þarna?“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗