Þau bjóða upp á fyrsta Bókakonfekt vetrarins
Bókakonfekt Forlagsins hefst í kvöld, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20 í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39 og í streymi sem sjá má hér fyrir neðan.
Bókakonfektkvöldin eru löngu orðin fastur liður bókaunnenda í aðdraganda jóla. Á kvöldunum lesa rithöfundar úr bókum sínum og árita fyrir þá sem þess óska. Léttar veitingar eru í boði. Allir eru velkomnir. Kvöldin eru fjögur og eins og áður sagði byrjar það fyrsta í kvöld, og síðan koll af kolli næstu þrjú fimmtudagskvöld.
Í kvöld koma fram:
Illugi Jökulsson - Eldsins ógn
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir - Deig
Eliza Reid - Og svo varð ég forsetafrú
Kristín Ómarsdóttir - Móðurást: Lausnargjaldið
Hjálmar Sveinsson - Húsið: Hlýskeið
Nanna Rögnvaldardóttir - Eitur í augum
Gunnar Helgason - Sturla: Tvíburaveiðar
Hildur Knútsdóttir - Skugginn
Benný Sif Ísleifsdóttir - Vetrarþrestir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗