Nýtt líf Greenwood í Tyrklandi - Heldur einkalífi sínu frá sviðsljósinu
Mason Greenwood, fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur komið sér vel fyrir í Tyrklandi eftir að hafa gengið til liðs við Fenerbahce frá Marseille í sumar.
Tyrkneska stórliðið greiddi 33 milljónir punda fyrir Greenwood, sem er 25 ára, og gerði hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins.
Samkvæmt umfjöllun Daily Mail hefur Englendingurinn lagt mikla áherslu á að halda einkalífi sínu frá sviðsljósinu.
Greenwood býr ásamt sambýliskonu sinni, Harriet Robson, og tveimur dætrum þeirra í Sarıyer, einu af glæsilegri íbúðahverfum Istanbúl.
Þar búa fjölmargir knattspyrnumenn í lokuðum íbúðahverfum þar sem öryggisgæsla og næði eru í fyrirrúmi.
Greenwood var handtekinn árið 2022 og síðar ákærður fyrir tilraun til nauðgunar, ofbeldi og þvingandi hegðun. Ákærurnar voru síðar felldar niður en Manchester United ákvað að hann myndi ekki snúa aftur til félagsins.
Hann lék í kjölfarið með Getafe og Marseille áður en hann flutti til Tyrklands.
Greenwood hefur lítið tjáð sig opinberlega og birtir sjaldan færslur á samfélagsmiðlum. Innan vallar hefur honum hins vegar gengið vel.
Hann hefur komið að ellefu mörkum í átján leikjum fyrir Fenerbahce og virðist vera að finna sig á nýjan leik í Tyrklandi.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗