Tryllingur Alisson vakti mikla athygli - Ósáttur með félaga sinn
Alisson Becker, markvörður Liverpool, var allt annað en sáttur við liðsfélaga sinn Jeremy Jacquet í 3-2 tapi gegn Fenerbahce í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöldið.
Atvikið átti sér stað þegar Mason Greenwood jafnaði metin fyrir tyrkneska liðið með aukaspyrnu.
Jacquet stóð í varnarvegg Liverpool en sneri sér undan boltanum sem fór í líkama hans og breytti algjörlega um stefnu.
Alisson hafði þegar kastað sér í hina áttina og átti því enga möguleika á að verja skotið. Brasilíski markvörðurinn brást ókvæða við og öskraði á Jacquet.
„Alisson er alveg brjálaður og það með réttu. Þú verður að horfast í augu við boltann,“ sagði Ally McCoist í lýsingu TNT Sports.
Jacquet, sem er 21 árs, hefur annars staðið sig vel á sínu fyrsta tímabili hjá Liverpool.
Frakkinn kom frá Rennes í sumar fyrir 55 milljónir punda. Liverpool tapaði leiknum 3-2 eftir að hafa komist tvívegis yfir.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗