Fór í hart vegna íbúðar fyrir börn með mikinn vanda og hafði betur
Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 5. nóvember 2026 20:00
Hafnarfjörður. Mynd: FB-síða Hafnarfjarðar.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur orðið við kröfu fyrrum eiganda íbúðar á efri hæð í tvíbýlishúsi í Hafnarfirði um að fella úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa bæjarins um að aðhafast ekkert vegna umönnunarstarfsemi fyrir börn með mikinn vanda, sem starfrækt hefur verið í íbúðinni á neðri hæð hússins.
Kæran var lögð fram í lok ágústs síðastliðins en á meðan hún var til meðferðar var íbúðin á efri hæðinni seld til fyrirtækis.
Í ágúst sendi þáverandi eigandi íbúðarinnar á efri hæðinni tölvupóst til byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar þar sem hann óskaði eftir upplýsingum um hvort gefið hefði verið út leyfi fyrir breyttri notkun á neðri hæð hússins. Benti hann á að 1. ágúst 2026 hefði hafist rekstur vegna sérhæfðrar umönnunarstarfsemi fyrir börn með mikinn vanda á neðri hæðinni. Sólarhringsvöktun væri í húsinu með að lágmarki tveimur starfsmönnum. Óskaði eigandinn eftir svörum við ýmsum spurningum, m.a. hvernig byggingarfulltrúi hygðist bregðast við þessari starfsemi.
Ekki er tekið fram í úrskurði nefndarinnar hvaða aðili annast rekstur starfseminnar.
Leyfi
Eigandinn fékk þau svör frá Hafnarfjarðarbæ að yrði byggingarfulltrúa kunnugt um aðstæður sem gæfu tilefni til að ætla að notkun mannvirkisins væri ekki í samræmi við samþykkta notkun gæti hann tekið málið til frekari skoðunar og gripið til þeirra úrræða sem lög mæli fyrir um. Ekki yrði tekin afstaða eingöngu á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram hefðu komið í erindinu heldur þyrfti slíkt mat að byggjast á nánari skoðun á eðli, umfangi og framkvæmd þeirrar starfsemi sem um ræddi. Viku síðar var eigandinn síðan upplýstur um að byggingarfulltrúi hefði farið yfir málið og teldi ljóst að ekki væri um rekstrarleyfisskylda starfsemi að ræða og því myndi embættið ekkert aðhafast í málinu.
Lagði eigandinn þá fram kæru til úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Í kærunni kom fram að mun meiri umgangur fylgdi umönnunnarstarfseminni heldur en ef um væri að ræða íbúðarhúsnæði. Gengið væri um eins og um fyrirtæki væri að ræða en ekki heimili. Íbúðin á efri hæðinni hefði verið til sölu, en starfsemi á neðri hæð hefði augljóslega haft áhrif á fasteignaverð.
Í andsvörum Hafnarfjarðarbæjar kom fram að byggingarfulltrúi hafi metið það svo að umrætt vistunarúrræði teldist ekki vera rekstrarleyfisskyld þjónusta sem hefði kallað á breytta notkun fasteignarinnar. Húsið væri staðsett á svæði sem skilgreint væri sem íbúðarsvæði í gildandi aðalskipulagi og væri eignin skráð sem íbúð í fasteignaskrá. Neðri hæð hússins væri nýtt sem lögheimili og dvalarstaður barna sem þar byggju í heimilislegu umhverfi. Sú staðreynd að börnunum væri veittur nauðsynlegur stuðningur og umönnun af starfsfólki á vöktum breytti ekki þeirri grundvallarstaðreynd að húsnæðið væri nýtt sem íbúð og heimili þeirra einstaklinga sem þar dveldu. Þar sem ekki hafi verið ráðist í byggingarframkvæmdir og notkun íbúðarinnar yrði áfram fyrir íbúðir hafi engin lagaskilyrði verið fyrir hendi til að krefjast byggingarleyfis fyrir breyttri notkun eða beita þvingunarúrræðum laga um mannvirki.
Illa skoðað
Á meðan úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála var með málið til meðferðar var hún upplýst um að íbúðin hefði verið seld og afhent nýjum eiganda, sem er fyrirtæki, en afsal hafði þá ekki verið gefið út.
Nefndin segir í sinni niðurstöðu að afsal hafi nú í byrjun nóvember enn ekki verið gefið út, en salan fór fram í september, og þar með eigi kærandinn enn aðild að málinu þótt hann hafi selt íbúð sína.
Fram kemur að engin gögn liggi fyrir um umönnunarstarfsemina á neðri hæðinni og því hafi nefndin óskað eftir upplýsingum frá Hafnarfjarðarbæ um hvaða gögn hefðu legið að baki þeirri að baki þeirri ákvörðun byggingarfulltrúa að aðhafast ekki frekar. Hafi þar að auki verið vísað til þess sem fram hafi komið í svari til eigandans að mat á því hvort starfsemin fæli í sér breytta notkun á fasteign yrði ekki eingöngu framkvæmt á grundvelli upplýsinga sem hefðu borist frá honum heldur yrði einnig tekið mið af nánari skoðun á eðli, umfangi og framkvæmd starfseminnar. Í svari bæjaryfirvalda við fyrirspurn nefndarinnar hafi komið fram að ákvörðunin hefði eingöngu tekið mið af þeim upplýsingum sem veittar voru af hálfu kærandans.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála segir að samkvæmt stjórnsýslulögum sé stjórnvöldum skylt að sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun sé tekin. Í þeirri skyldu felist m.a. að sjá til þess að afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar séu til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í máli. Þar sem engin gögn eða upplýsingar hafi legið fyrir um hina umþrættu starfsemi, annað en það sem kærandinn veitti upplýsingar um, verði að líta svo á að byggingarfulltrúi hafi ekki rannsakað málið með fullnægjandi hætti. Verði af þeirri ástæðu ekki hjá því komist að fella ákvörðun hans, um að aðhafast ekkert í málinu, úr gildi.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗