Fyrirsætan fær mikið hrós fyrir þennan hrekkjavökubúning - „Besti sem ég hef séð“
Bandaríska fyrirsætan Sydney Thomas vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum þegar hún klæddi sig upp sem Erling Haaland, framherja Manchester City, á hrekkjavökunni.
Thomas, sem er 22 ára, sló í gegn sem hringstúlka í hnefaleikabardaga Jake Paul og Mike Tyson árið 2024.
Hún birti myndir af sér í búningi sem var innblásinn af ljósbláum heimabúningi Manchester City, með nafni Haaland á bakinu.
Thomas bætti einnig við víkingahjálmi og hermdi eftir frægum markafögnuði Norðmannsins.
Það sem vakti þó mesta athygli var þegar hún notaði gervigreind til að setja andlit Haaland á sig á mynd og í myndbandi.
Fylgjendur hennar á Instagram, sem eru rúmlega 900 þúsund, tóku uppátækinu með miklum hlátri.
„Þetta er frábært, en fjórða myndin hræddi mig,“ skrifaði einn.
„Þetta er besti hrekkjavökubúningur sem ég hef séð,“ sagði annar.
Thomas merkti Haaland sjálfan í færslunni en ekki kemur fram hvort Norðmaðurinn hafi brugðist við.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗