Er þetta merkingin á bak við nýja fagnið hans Ronaldo?
Cristiano Ronaldo hefur vakið athygli knattspyrnuáhugamanna með nýjum markafögnuði sem virðist tengjast stóru markmiði Portúgalans.
Ronaldo, sem er 41 árs, skoraði þrennu í 5-3 sigri Al-Nassr gegn Al-Kholood í lok október og er nú kominn með 985 mörk á ferlinum.
Hann vantar því aðeins 15 mörk til að ná hinu magnaða þúsund marka takmarki.
Undanfarið hefur Ronaldo byrjað að mynda bókstafinn „M“ með fingrunum þegar hann fagnar mörkum, í stað þess að nota eingöngu sinn fræga „Siu“ fögnuð.
Stuðningsmenn telja sig nú hafa fundið skýringuna.
Bókstafurinn M táknar nefnilega töluna 1.000 í rómverskum tölustöfum. Ronaldo hefur sjálfur ekki staðfest merkinguna en kenningin hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.
Portúgalinn hefur áður rætt drauminn um að ná þúsund mörkum.
„Það væri rúsínan í pylsuendanum á ferlinum. Ég hef sagt að ég vilji ná þessu markmiði og ég mun ná því,“ sagði Ronaldo í september.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗